Innbrotsprófanir
Afmörkuð og heimiluð tilraun til að brjótast inn í kerfin þín, einnig með aðstoð gervigreindar. Þú færð veikleikana, sönnun þess að þeir virki og ráð til að loka þeim.
NánarFestur mun slitna.
Garmur brýst inn í kerfin þín með leyfi, áður en einhver annar gerir það án þess.
Bóka samtalGarmur sinnir innbrotsprófunum, veikleikaskönnun, raunlægum innbrotsprófunum og öryggisúttektum og gefur út eigin öryggisrannsóknir og ókeypis verkfæri.
01 / Þjónusta
Afmörkuð og heimiluð tilraun til að brjótast inn í kerfin þín, einnig með aðstoð gervigreindar. Þú færð veikleikana, sönnun þess að þeir virki og ráð til að loka þeim.
NánarKerfisbundin leit að þekktum veikleikum og rangstillingum. Breiðari en innbrotsprófun og grynnri: hún sýnir hvað stendur opið, ekki hversu langt er hægt að komast.
NánarPrófun á því hvort hægt sé að komast inn í húsnæði og að búnaði án heimildar. Hurðir, aðgangsstýring og verklag eru líka hluti af vörnunum.
NánarKerfisbundin yfirferð á stillingum, aðgangi og verklagi, borin saman við þær kröfur sem þú þarft að standast.
NánarÞegar verkefnið er að undirbúa varnirnar, ekki að brjóta þær.
02 / Ferlið
Ákveðið er í sameiningu hvað er prófað, hvað ekki og hvers vegna. Afmörkunin liggur fyrir skriflega áður en nokkuð er snert.
Skrifleg heimild frá þeim sem má veita hana. Án hennar hefst engin prófun.
Andri framkvæmir prófunina sjálfur, innan þess umfangs sem samið var um.
Hver veikleiki er skráður með sönnun þess að hann virki og ráðleggingum um lagfæringu.
Farið er yfir niðurstöðurnar með þér, lið fyrir lið, svo ljóst sé hvað þarf að laga fyrst.
04 / Verkfæri
Daglegt yfirlit yfir alvarlega veikleika (CVSS 9,0 og hærra), raðað eftir því hvort verið sé að misnota þá í raun. Allt sem liggur að baki einkunninni er sýnilegt.
Opna critical.isVinnusvæði fyrir lénin þín. Keyrðu prófanir á SPF, DKIM, DMARC og BIMI, skoðaðu færslurnar og vinndu þig í gegnum það sem þarf að laga.
Opna dmark.isOpinberar upplýsingar um lén eða IP-tölu á einum stað: WHOIS, DNS, TLS-skilríki, auðkenning tölvupósts, GeoIP, ASN og bakvísun (reverse DNS).
Opna fetch.garmur.isChromium-viðbót sem reynir að maska valin nöfn, kennitölur og leyndarmál á tækinu áður en skilaboð fara til ChatGPT eða Claude og setur þau svo aftur inn í svarið.
Opna dmz.is05 / Samband
Stutt lýsing á kerfinu og tímaramma dugar til að byrja. Fyrsta svarið verður spurningar, ekki sölukynning.
Bóka samtalGeyr nú Garmur mjög
fyrir Gnipahelli,
festur mun slitna,
en freki renna.Völuspá