Húsnæði og aðgangur
Hvort hægt sé að komast inn og hversu langt: inngangar, aðgangsstýring og svæði sem eiga að vera lokuð.
Þjónusta / 03 · Physical penetration testing
Raunlæg innbrotsprófun svarar því hvort einhver geti gengið inn, að búnaði og gögnum, án þess að eiga þar erindi. Hún fer aðeins fram með skriflegri heimild þess sem ræður yfir húsnæðinu.
01 / Umfang
Hvort hægt sé að komast inn og hversu langt: inngangar, aðgangsstýring og svæði sem eiga að vera lokuð.
Hvort verklagið heldur þegar á reynir, til dæmis móttaka gesta og viðbrögð við ókunnugum.
Prófunin er skipulögð með tengilið hjá þér og fer aldrei fram án skriflegrar heimildar.
02 / Aðferð
Engin prófun hefst án skriflegrar heimildar og afmarkaðs umfangs.
Hverjum veikleika fylgir sönnun þess að hægt sé að nýta hann.
Andri framkvæmir prófunina sjálfur og fer sjálfur yfir niðurstöðurnar með þér.
03 / Afurðir
# Hver veikleiki í skýrslunni
hvað: lýsing á veikleikanum
hvar: kerfið eða staðurinn þar sem hann fannst
sönnun: hvernig sýnt var fram á hann
lagfæring: ráðlegging um úrbætur