Um Garm

Einn maður, eitt merki.

Garmur er íslenskt öryggismerki fyrir innbrotsprófanir og öryggisrannsóknir. Á bak við það stendur einn maður, Andri Pétur Hafþórsson, sem rekur það á eigin kennitölu.

01 / Maðurinn

Andri Pétur Hafþórsson

Andri framkvæmir prófanirnar sjálfur. Hann hefur reynslu af innbrotsprófunum, gervigreindarstuddum innbrotsprófunum, veikleikaskönnun, raunlægum innbrotsprófunum og úttektum.

Þú ert í beinu sambandi við þann sem vinnur verkið og ber ábyrgð á því.

02 / Réttindi

Persónuleg réttindi og reynsla Andra

ISO/IEC 27001 · ISO/IEC 27701 · ISO/IEC 42001. Lead Auditor Fellow hjá Mastermind Certifications.

Endurnýjaði tækniinnviði RVX, hannaði nýja starfsstöð með kröfur TPN Gold að leiðarljósi og leiddi fyrirtækið í gegnum vottunarferlið.

Þessi réttindi og reynsla tilheyra Andra. Þau fela ekki í sér vottun á Garmi eða þjónustu Garms.

03 / Nafnið

Hundurinn við hellinn

Garmur er hundurinn í norrænni goðafræði sem er bundinn við Gnipahelli. Í Völuspá geyr hann hátt fyrir hellinum og því er spáð að festin slitni og hann hlaupi laus.

Línan „festur mun slitna“ er kjarni merkisins. Allar festar slitna á endanum. Betra er að vita hvar áður en á reynir.

04 / Kastro

Systurmerki Kastro

Garmur og Kastro eru systurmerki sem sami maður rekur. Kastro sinnir vefsíðum, hýsingu og innviðum; Garmur sinnir öryggisprófunum og öryggisrannsóknum.

kastro.is

05 / Rekstur

Rekstrarupplýsingar

Heiti
Garmur
Skráð heiti rekstraraðila
Andri Pétur Hafþórsson
Kennitala rekstraraðila
210898-2209
Skráð heimilisfang
Hamraborg 34, 200 Kópavogur, Ísland