Veikleikatilkynningar
Veikleikatilkynningar
Ef þú finnur mögulegan öryggisveikleika í garmur.is eða verkfæri frá Garmi skaltu senda upplýsingar á security@garmur.is. Andri Pétur Hafþórsson tekur við tilkynningum.
Hvað fellur undir
Stefnan nær til þessa vefs og verkfæranna sem Garmur gefur út:
- garmur.is
- Critical.is (critical.is)
- Dmark (dmark.is)
- Fetch (fetch.garmur.is)
- dmz (dmz.is)
Hvað á að fylgja
Lýstu því hvaða vefur eða verkfæri á í hlut, hvernig má endurskapa vandann og hvaða áhrif hann gæti haft. Notaðu tilbúin gögn í dæmum og fjarlægðu lykilorð, aðgangstákn og persónuupplýsingar áður en þú sendir gögn.
Reglur um prófanir
Takmarkaðu prófanir við eigin reikninga og gögn. Ekki nálgast eða breyta gögnum annarra, trufla þjónustu eða beita félagsverkfræði. Þessi síða veitir ekki heimild til prófana á kerfum þriðju aðila.
Birting
Hafðu samband áður en tæknileg atriði eru birt opinberlega svo hægt sé að meta vandann og samræma birtingu við úrbætur.