Þjónusta

Þjónusta

Garmur prófar varnir með því að ráðast á þær, með leyfi og innan afmarkaðs umfangs. Prófanirnar eru aðalstarfið; ráðgjöfin styður við þær.

01 / Prófanir

Fjórar leiðir inn.

01 · Penetration testing

Innbrotsprófanir

Afmörkuð og heimiluð tilraun til að brjótast inn í kerfin þín, einnig með aðstoð gervigreindar. Þú færð veikleikana, sönnun þess að þeir virki og ráð til að loka þeim.

Nánar

02 · Vulnerability scanning

Veikleikaskönnun

Kerfisbundin leit að þekktum veikleikum og rangstillingum. Breiðari en innbrotsprófun og grynnri: hún sýnir hvað stendur opið, ekki hversu langt er hægt að komast.

Nánar

03 · Physical penetration testing

Raunlægar innbrotsprófanir

Prófun á því hvort hægt sé að komast inn í húsnæði og að búnaði án heimildar. Hurðir, aðgangsstýring og verklag eru líka hluti af vörnunum.

Nánar

04 · Security audits

Öryggisúttektir

Kerfisbundin yfirferð á stillingum, aðgangi og verklagi, borin saman við þær kröfur sem þú þarft að standast.

Nánar

Ráðgjöf

Þegar verkefnið er að undirbúa varnirnar, ekki að brjóta þær.

05 · Security and resilience reviews

Öryggi og viðnámsþróttur

Afmarkaðar öryggisyfirferðir og hagnýtar úrbætur á aðgangsstýringu, tölvupósti og vernd gagna.

Nánar

06 · Audit readiness

Undirbúningur úttekta

Aðstoð við að skipuleggja gögn, greina frávik og undirbúa mat á upplýsingaöryggi og stjórnun gervigreindar.

Nánar

02 / Ferlið

Frá umfangi til skýrslu.

  1. Skref 01

    Umfang

    Ákveðið er í sameiningu hvað er prófað, hvað ekki og hvers vegna. Afmörkunin liggur fyrir skriflega áður en nokkuð er snert.

  2. Skref 02

    Heimild

    Skrifleg heimild frá þeim sem má veita hana. Án hennar hefst engin prófun.

  3. Skref 03

    Prófun

    Andri framkvæmir prófunina sjálfur, innan þess umfangs sem samið var um.

  4. Skref 04

    Skýrsla

    Hver veikleiki er skráður með sönnun þess að hann virki og ráðleggingum um lagfæringu.

  5. Skref 05

    Yfirferð

    Farið er yfir niðurstöðurnar með þér, lið fyrir lið, svo ljóst sé hvað þarf að laga fyrst.

Ertu með kerfi sem þarf að prófa?

Bóka samtal