Ókeypis verkfæri

Verkfæri

Verkfæri sem Garmur gefur út og hver sem er má nota. Þau eru ókeypis og ekkert þeirra krefst aðgangs.

Í loftinuYfirlit yfir veikleika

Critical.is

Daglegt yfirlit yfir alvarlega veikleika (CVSS 9,0 og hærra), raðað eftir því hvort verið sé að misnota þá í raun. Allt sem liggur að baki einkunninni er sýnilegt.

  • Sameinar CVE-skrár, CISA KEV, EPSS og SSVC
  • Vefur, RSS, JSON API og MCP-tenging
  • Ókeypis, enginn aðgangur og engin rakning
Opna critical.is

Í loftinuAuðkenning tölvupósts

Dmark

Vinnusvæði fyrir lénin þín. Keyrðu prófanir á SPF, DKIM, DMARC og BIMI, skoðaðu færslurnar og vinndu þig í gegnum það sem þarf að laga.

  • Prófanir í rauntíma og leiðbeiningar
  • Engin nýskráning. Vistuð vinna er geymd í vafranum þínum
  • Niðurstöður eru ekki geymdar á netþjóni
Opna dmark.is

Í loftinuLén og IP-tölur

Fetch

Opinberar upplýsingar um lén eða IP-tölu á einum stað: WHOIS, DNS, TLS-skilríki, auðkenning tölvupósts, GeoIP, ASN og bakvísun (reverse DNS).

  • Bara uppflettingar, engar skannanir
  • Enginn aðgangur og engin rakning
  • Hentar vel við bilanaleit í pósti og skilríkjum
Opna fetch.garmur.is

Alpha-prófunPersónuvernd í AI-spjalli

dmz

Chromium-viðbót sem reynir að maska valin nöfn, kennitölur og leyndarmál á tækinu áður en skilaboð fara til ChatGPT eða Claude og setur þau svo aftur inn í svarið.

  • Smíðuð með íslensk nöfn og kennitölur í huga
  • Ókeypis og enginn DMZ-aðgangur
  • Eftir bestu getu. Hún getur misst af auðkennum og viðhengi fara óbreytt

Alpha-útgáfa. Prófaðu hana aðeins með tilbúnum gögnum.

Opna dmz.is